Blessuð jólin

Þá er komið að kveðjustund. Fallega jólatréð á leið út á götu, skrautið ofan í kassa og aðventuljósin þurfa að bíða í ellefu mánuði eftir því að sjá dagsins ljós á ný. Þessu fylgir alltaf ákveðin sorg eða tregi, ég verð að viðurkenna það.

 hvít ljós

Hins vegar er ég ein af þeim sem ætla mér að leyfa hvítu ljósunum að loga aðeins lengur. Ég get ekki hugsað mér að slökkva í myrkasta skammdeginu. Mér finnst þetta gott átak. Jóladótið og aðventuljósið fer niður en hvítu seríurnar fá að lifa, aðeins lengur...og ég á nú nokkrar Sörur eftir til að maula í góðu tómi á kvöldin...við bjarmann af ljósunum Wink 


mbl.is Kveðja jólin á þrettánda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Eyrún ég ætla nú að geyma það til morguns að fara með þetta fallega blágrenitré mitt út. Ég er búinn að sjá að íslenskt blágreni heldur barrinu alveg og hrinur nánast ekkert af því. Þess vegna ætti að hætta að flytja inn danskan normannsþin eins og gert hefur verið.

Haraldur Bjarnason, 6.1.2009 kl. 20:13

2 Smámynd: Eyrún Huld Haraldsdóttir

Já sammála - okkar tré (Rauðgreni) stendur enn uppi og það vel - aðeins farið að falla af því en ekki stórlega. Við getum því gengið í kringum jólatréð a.m.k. einn dag í viðbót :)

Eyrún Huld Haraldsdóttir, 6.1.2009 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Eyrún Huld Haraldsdóttir
Eyrún Huld Haraldsdóttir
Kona, dóttir, systir, frænka, vinkona og móðir. Ættuð af Fjöllunum í annan legginn og Skaganum í hinn. B.A.próf í íslensku - kennari í framhaldsskóla.

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband