Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Þorrablót sonarins

Marinó kemur glaður með víkingakórónu á höfði - ,,mamma það var þorrablót á leikskólanum"

Mamma: ,,frábært - og fékkstu þér hákarl?"

Marinó: ,,nei mamma ég borða ekki hákarl og ekki hval"

Mamma: ,,nú en fékkstu þér sviðasultu?"

Marinó: ,,nei, ég borða ekki heldur smiðasultu"

Mamma: ,,hmmm en hvað með hrútspunga?"

Marinó: ,,nei mamma, ég borða ekki rostunga!"

Þessar elskur - smiðasulta og rostungar... LoL


Frost á Fróni...

Hefði ekki verið nær að þessir gæjar færu í afþíðingu?

Þeir voru freðnir fyrir, og rúmlega það.

snowman

mbl.is Hreiðar Már nýkominn frá Suðurskautslandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tækniundur

Þessi kona er kominn aftur á vinnumarkaðinn eftir langt, langt hlé...

 


Fíkn?

Ætli það sé ávanabindandi að mótmæla?

Ætli maður verði háður þessu og á endanum mótmæli maður bara hverju sem er, hvar sem er og hvenær sem er?

Er til eitthvað sem heitir mótmælisti...og er til lækning eða meðferð við því Errm


mbl.is Lögregla beitti piparúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út fyrir rammann

 

Geta menn ekki hugsað út fyrir flokkinn rétt á meðan þeir óska forsætisráðherra góðs bata?

Ég hjó eftir því í kvöldfréttunum að veikindin virðast fyrst og fremst vera áfall fyrir Sjálfstæðisflokinn - en ekki þjóðina alla - sem þau að sjálfsögðu eru.

Er hluti af hundinum ef til vill grafinn í þessari þröngsýni Sjálfstæðismanna?  Stórt er spurt...


mbl.is Veikindi Geirs mikið áfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég: Nemandinn og kennarinn

Það er skemmtileg upplifun að vera nemandi á ný. Ekki það að það sé svo óralangt síðan ég útskrifaðist, en einhvern veginn er maður algjörlega dottinn úr þessum gír. Nú er ég öfugu megin við borðið - eða eiginlega báðum megin. Það getur verið erfitt að halda fullri athygi í 6 - 8 klukkutíma...

school.jpg

Maður hefur vissulega gott af þessu og kemur eflaust mun nemendavænni til vinnu nú á nýrri önn Wink


Hafa þeir ekkert þarfara að gera...?

...en að storma í ,,við erum góður gæjarnir" fyrirfram dauðadæmda auglýsingaherferð? israel.jpg

 Jú, þeir ættu að vera heima hjá sér, vinna að því að koma á friði, leggja niður vopn og hætta að drepa saklausa borgara. Og hana nú! Snáfiði.


mbl.is Heimsókn Ísraela til Íslands afþökkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til sölu!

Ágætis tilboð í kreppunni:

tombstone Hér er notaður legsteinn til sölu.  Hann er sagður henta best fyrir þann sem heitir Homer Hendel Bergen Heinzel. Aðeins eitt eintak til sölu.

tennurSett af lítið notuðum gervigómum til sölu.  Aðeins 2 tennur vantar

dynaRúmdýna í fullri stærð.  20 ára ábyrgð.  Eins og ný.  Örlar á hlandlykt.

kalkunnKalkúnn til sölu. Að hluta til snæddur.  Aðeins 8 daga gamall.  Báðir leggir ósnertir.


Í skólanum...

Nú sit ég sveitt en jafnframt einbeitt og sem próf, legg fyrir próf og fer yfir próf...allt snýst um próf og skóla þessa dagana. Valkvíði, góðvinur minn, er enn á ný kominn í heimsókn. Ég þarf sumsé að velja á milli þriggja námskeiða í Mastersnáminu í HÍ til að taka í fjarnámi núna...

 

hugsi_api_770500.jpg

Íslenska sem annað tungumál

Nám og þroski barna, unglinga og fullorðinna

Ritlist og bókmenntir

 

Hmmm...hvað hljómar nú best af þessu? Hvað ætli gagnist mér best í lífi og starfi?...erfitt val, ó já.


Blessuð jólin

Þá er komið að kveðjustund. Fallega jólatréð á leið út á götu, skrautið ofan í kassa og aðventuljósin þurfa að bíða í ellefu mánuði eftir því að sjá dagsins ljós á ný. Þessu fylgir alltaf ákveðin sorg eða tregi, ég verð að viðurkenna það.

 hvít ljós

Hins vegar er ég ein af þeim sem ætla mér að leyfa hvítu ljósunum að loga aðeins lengur. Ég get ekki hugsað mér að slökkva í myrkasta skammdeginu. Mér finnst þetta gott átak. Jóladótið og aðventuljósið fer niður en hvítu seríurnar fá að lifa, aðeins lengur...og ég á nú nokkrar Sörur eftir til að maula í góðu tómi á kvöldin...við bjarmann af ljósunum Wink 


mbl.is Kveðja jólin á þrettánda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Eyrún Huld Haraldsdóttir
Eyrún Huld Haraldsdóttir
Kona, dóttir, systir, frænka, vinkona og móðir. Ættuð af Fjöllunum í annan legginn og Skaganum í hinn. B.A.próf í íslensku - kennari í framhaldsskóla.

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband