Kryddsíldinni? Áramótum? Sigmundi Erni? Tækjabúnaði Stöðvar tvö? Guðmundi og Snorra Steini?
Það er gott við getum glaðst saman á gamlársdag og stundað þroskuð og vel hugsuð mótmæli. Þetta er hreint og beint ofbeldi og að auki framin skemmdarverk á eigum annarra.
Þetta fólk (og ég veit að þetta er lítill hópur) má gjarnan fá að taka afleiðingum gjörða sinna. Þetta gekk of langt - skilar engu nema gremju og reiði.
En að öðru:
Gleðilegt ár - megi nýja árið verða fullt af nýjum tækifærum, styrkri samtöðu og gleði og friði í hjörtum...maður má alltaf vona...
Farið varlega. Áramótafaðmlag austan að landi.
Fólk slasað eftir mótmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Dægurmál | 31.12.2008 | 16:21 (breytt kl. 16:28) | Facebook
Athugasemdir
Blind og heyrnarlaus?
Eyrún Dögg (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 16:26
Ég heyrði nú mest lítið þegar ég las fréttina - og þar kemur hvergi fram hverju var verið að mótmæla. Það var ábending mín ef það fór framhjá einhverjum.
Eyrún Huld Haraldsdóttir, 31.12.2008 kl. 16:31
Sennilega hefur fólk verið að mótmæla að stöð 2 noti myndavélar frá Sony en ekki Panasonic. Eina sem mér dettur í hug.
Jóhann (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 16:39
Ég lít svo á að mótmælendur hafi verið að tjá hug sinn til þeirrar valdstjórnar sem hefur niðurlægt umbjóðendur sína með afneitun og hroka. Og þeir hafi verið að lýsa viðbjóði sínum á því að þetta fólk baði sig í sviðsljósum hátíðarhalda og ávarpi þjóðina með landsföðurlegum gáfumannasvip.
Árni Gunnarsson, 31.12.2008 kl. 16:43
Já það virðist ekki vera til önnur leið til að hafa stjórn á þessum skríl, að það þurfi að kalla út sersveit og aðra lögreglumenn útaf svona vitleysisgang! Ætla mótmælendur að borga kostnaðinn af þessu?? Og Kryddsíldin verður ekki vegna skemmda á búnaði!!! Það þarf að fara að fangelsa þessa ófriðaseggi, þá er ég ekki að tala um þá sem mótmæla á réttum forsendum, heldur þá sem standa fyrir skemmdaverkum.
Og Eyrún dögg þú ert álíka málefnaleg og þessir mótmælendur, koma engu á framfæri, bara með dónaskap og læti.
Andrir (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 18:17
Hverju var verið að mótmæla já???Sennilega vantaði meira krydd í eða á síldina.
Gleðilegt ár....
Halldór Jóhannsson, 1.1.2009 kl. 13:30
Það varð enginn skemd á búnaði nema að það missti einhver blys á snúru sem ekki var dýr. Tapið sem stöð tvö talaði um var vegna tapaðra auglýsingatekna þegar m.a. Rio Tinto dró fé sitt til baka. Bara svona til að hafa það sem sannara reynist.
Héðinn Björnsson, 7.1.2009 kl. 15:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.