Gleðiefni á annars svörtum tímum að kona setjist í stól bankastjóra Nýja Landsbankans. Við getum verið viss um að vera laus við óþarfa fjármálabrask því konur eru, að mínu mati, alla jafna hagsýnari en karlmenn og alls ekki eins miklir valdagræðgis-peningapúkar
Þær hafa jú æfinguna í að stjórna heimilunum og barnauppeldinu. Bjartari tímar framundan hjá Landsbankanum, það er að segja hinum nýja Landsbanka.
![]() |
Nýi Landsbanki tekur við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 9.10.2008 | 11:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
![]() |
Taka peninga úr bönkum og leggja í kaupfélagið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 7.10.2008 | 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
...Norðmenn standa sig. Það eru þeir sem fylgjast með okkur, ekki öfugt. Það eru þeir sem hafa samband við okkur að fyrra bragði, ekki öfugt. Það eru þeir sem tala um táknrænt og náið sögulegt samband þjóðanna, ekki öfugt.
Hvernig stendur á þessu? Einhvern veginn hefði ég haldið að okkar fyrsta skjól væri einmitt hjá þjóðunum sem okkur standa næst, Norðurlandaþjóðunum. Talaði Geir virkilega ekki við nágranna okkar að fyrra bragði. Fannst honum gagnlegra að snúa sér til ,,stærri" og ,,merkilegri" þjóða eins og Bandaríkjanna eða Rússlands?
Stórundarlegt, alveg hreint.
![]() |
Norðmenn fylgjast grannt með |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 7.10.2008 | 20:54 (breytt kl. 20:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Trúðaísinn höfðar til barnanna af skiljanlegum ástæðum. Strákurinn minn er algjör íspúki, alveg sjúkur í ís og velur sér ósjaldan trúðaís frá Kjörís.
Ég hef haft það sem reglu að hann segi mér frá því þegar hann kemur að tyggjókúlunni og afhendi móður sinni þennan skaðræðishlut. Og það hefur hann gert hingað til, þegjandi og hljóðalaust. Nú á ég von á því að fá hlaupbangsa eða annað góðgæti sent úr aftursætinu í næsta ísbúðarrúnti, og tek því fagnandi. Tyggjókúla á ekki heima í barnaís, grjóthörð og girnileg.
![]() |
Barn lenti í lífsháska vegna tyggjókúlu í ís |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | 7.10.2008 | 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)